Þekking og reynsla sem tryggir raunsæjar áætlanir
Um okkur
Stofnendur Spyrnu þeir, Agnar Kofoed-Hansen og John Fenger eru traustir einstaklingar sem eru tilbúnir að leiða fyrirtæki og stofnanir í átt að auknum árangri.
Með þeirra miklu þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum til að byggja raunsæjar útfærslur og áætlanir í samstarfi við og fyrir stjórnendateymi, verður auðveldara að ná markmiðum og sjálfbærum vexti.
Til að ná markmiðum í rekstri þarf að setja saman og byggja upp samstillt stjórnunarteymi. Til að ná settum árangri þarf að hafa skýra sýn, varða leiðina að settum markmiðum og sjá til þess að meðlimir teymisins „dragi öll vagninn“ í sömu átt.
Agnar Kofoed-Hansen
Agnar hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi, frumkvöðull og ráðgjafi. Sem frumkvöðull að stofnun tveggja fyrirtækja í fjármálaþjónustu, sem verðbréfamiðlari og sem stjórnarmaður í Arion banka og síðar Lífsverk lífeyrissjóði. Agnar hefur einstaska þekkingu og reynslu á sviði fjármála og stjórnunar. Sem frumkvöðull, leiðbeinandi og markþjálfi hefur Agnar dýpkað enn frekar þekkingu og reynslu sína til að efla stjórnendur fyrirtækja og frumkvöðla sem takast á við uppbyggingu, skipulag og rekstur sinna félaga. Síðastliðin 10 ár hefur Agnar starfað sem ráðgjafi á sviði stefnumótunar, stjórnendaþjálfunar, mannauðsstjórnunar, fjármála og ferlagreininga auk þess að taka að sér verkefnastjórn við samruna fyrirtækja og breytingastjórnun.
- +354-896 4224
- agnar@gmat.is
John Fenger
John hefur langa stjórnunarreynslu bæði á Íslandi og erlendis. Í gegnum árin hefur hann stjórnað margvíslegum rekstri, þar má nefna framleiðslufyrirtæki af ýmsum gerðum, nýsköpunarfyrirtæki og fyrirtæki sem stjórna áhættufjármagni. Á starfsferli sínum hefur John áunnið sér mikla reynslu á sviði stjórnunar og rekstrar. Þar má nefna stefnumótun fyrirtækja, fjármálastjórn, mannauðsstjórnun, viðskiptaþróun, rekstursstjórnun, markaðsfærslu og breytingastjórnun.
- +1610 659 2299
- j.fenger01@gmail.com