Önnur Þjónusta

Stýrum og leiðum verkefni frá upphafi til enda á skilvísan hátt

Önnur þjónusta

Stefnumótun fyrirtækja

Við aðstoðum stjórnendur og eigendur fyrirtækja við að skilgreina á skýran og skipulagðan hátt framtíðarsýn, stefnu og markmið og með hvaða hætti er hægt að ná fram mikilvægustu markmiðunum hverju sinni.

Fjármálastjórn og fjármálaráðgjöf

Við vinnum með stjórnendum fyrirtækja við að stilla upp nýju stjórnskipulagi og bæta umsjón með fjármálum fyrirtækisins. Tryggjum hagkvæmni og hagnýtingu fjármagns og leggjum þar með grunn að stöðugleika fyrirtækisins.

Sölu og markaðsstjórnun

Við aðstoðum stjórnendur fyrirtækja við markaðsgreiningar, markaðsáætlanir, skipulagningu sölustarfseminnar og eftirfylgni á árangri.

Rekstrarráðgjöf

Við greinum rekstur fyrirtækja með samtölum og greiningarvinnu og veitum leiðsögn varðandi mikilvægar umbætur. Umbætur sem miða að aukinni hagkvæmni, lækkun kostnaðar og aukins hagnaðar.

Mælaborð stjórnenda

Við bjóðum stjórnendum fyrirtækja upp á „nýja“ og hagkvæma nálgun við mælingar á árangri, framsetningu niðurstaðna og leiðir til að virkja alla starfsmenn í að ná settum markmiðum.

Viðskiptaþróun og stuðningur við frumkvöðla

Við aðstoðum einstaklinga og stjórnendur fyrirtækja við að greina tækifæri til vaxtar, byggja upp stefnumótandi samstarf og framkvæma áætlanir til að ná viðskiptamarkmiðum.

Breytingastjórnun

Við aðstoðum stjórnendur fyrirtækja við innleiðingu á erfiðum og stefnumótandi breytingum á rekstri og skipulagi sem miða að því að endurheimta fjárhagslega heilsu og lífvænleika fyrirtækisins.

Stjórnendaþjálfun

Við þjálfum og eflum stjórnendur fyrirtækja í marksæknum og öguðum vinnubrögðum með trúnaðarsamtölum í þeim tilgangi að vinna með mikilvægar hugmyndir þeirra og stefnu. Markmiðið er að leysa vandamál við verkefnavinnu og stjórnun með bættum samskiptum og betra skipulagi.

Verkefnastjórn

Við aðstoðum stjórnendur fyrirtækja og verkefnastjóra við að stýra og leiða verkefni frá upphafi til enda á skilvísan hátt, með það að leiðarljósi að markmiðum verkefnisins sé náð. Tökum einnig að okkur verkefnastjórn sérvalinna verkefna.

Mannauðsstjórnun

Við aðstoðum stjórnendur við að skipuleggja og innleiða markvissa mannauðsstjórnun. Í því felst meðal annars að finna starfsfólki hlutverk sem eykur starfsánægju þess og leiðir til betri samskipta sem aftur eykur líkur á að markmið starfsheildarinnar náist.